Vertu velkomin til okkar á Snyrtistofuna Jónu

Við tökum vel á móti þér í Hamraborg, Kópavogi.

Okkar markmið er að veita vandaða þjónustu.

Opnunartími:
Mánudaga til fimmtudaga: 8 til 16/18.
Föstudaga: 8 til 15/16.

Hamraborg 10, 200 Kópavogi
554-4414 | snyrtistofa@snyrtistofa.is

Almennar meðferðir

Fótsnyrting

  • Hefst með mýkjandi fótabaði.
  • Neglur eru klipptar, þjalaður og þynntar eftir þörfum.
  • Naglabönd er snyrt. Sigg fjarlegt.
  • Notalegt fótanudd í lokin.
  • Hægt að bæta við meira dekri og fá lúxus snyrtingu með skrúbbi og heitum parfafín maski.

Fótaaðgerð

  • Allt sem á við um fótsnyrtingu.
  • Hentar þeim sem glíma við fótamein, eins og inngrónar táneglur og líkþorn og sykursjúka.

Handsnyrting

  • Hendur settar í gott handabað og naglabönd snyrt.
  • Neglur eru mótaðar, pússaðar og lakkaðar. 
  • Í lokinn er gefið gott handanudd.
  • Hægt að bæta við meira dekri og fá lúxus snyrtingu með skrúbbi og heitum parfafín maski.

Litun

  • Augnhár lituð.
  • Augabrúnir litaðar.
  • Augabrúnir mótaðar með plokkun eða vaxi.
  • Notalegt nudd í kringum augun. 

Vax meðferðir

  • Heitt vax borið á og kippt af með strimli.
  • Hárin eru tekin upp með rótum.
  • Gott að hafa 4-6 vikur a milli skipta til að hárin séu ekki of stutt til að ná bestum árangri. 

Rafmagnsháreyðing

  • Hentar þeim sem eru með óæskileg hár t.d. á höku, efri vör og hálsi eða öðrum smærri svæðum.
  • Sérstaklega gott fyrir ljós, gróf og fín hár en einnig fyrir dekkri hár.
  • Mjög fín nál er þrædd ofan í hvern hársekk og gefinn er straumur og með tímanum skemmist hársekkurinn.

Gjafabréf

Hægt er að kaupa gjafabréf fyrir einstaka meðferðir eða ákveðna upphæð eftir þinni ósk.

Andlitsmeðferðir

Biologique Recherche - Djúpvirk lúxus

  • 90 mínútur.
  • Lengri og dýpri útgáfa af klassísku meðferðinni. 
  • Unnið markvisst með húðina með öflugum virkum efnum, sérhæfðum maskameðferðum og nákvæmri húðgreiningu. 
  • Meðferðin er sérstaklega ætluð þeim sem vilja dýpri endurnýjun, aukinn ljóma og sýnilegan árangur.
  • Gefur húðinni meiri raka og jafnvægi, sléttari húð og vinnur gegn öldrunareinkennum. 
  • Þetta er fullkomin lúxusmeðferð fyrir þá sem vilja bæði slökun og hámarksárangur í einni meðferð. 

Biologique Recherche - Klassísk

  • 60 mínútur.
  • Sérsniðin meðferð sem byggir á einstakri húðgreiningu hönnuð til að endurheimta jafnvægi húðarinnar, auka raka og gefa húðinni ferskan og náttúrulegan ljóma. 
  • Meðferðin inniheldur nudd, milda djúphreinsun, virkar sévörur og nærandi maska sem eru valdir sérstaklega eftir ástandi húðarinnar hverju sinni. 
  • Hentar öllum húðgerðum og er tilvalin fyrir þá sem vilja árangursríka húðmeðferð sem gefur strax sýnilegan mun.  

Comfort Zone Andlitsbað

  • Húðvörur valdar eftir húðtegund.
  • Húðin bæði yfirborðs- og djúphreinsuð.
  • Gufa notuð til að hita húðina og undirbúa fyrir kreistun.
  • Herða, andlits og höfuðnudd.
  • Maski að lokum.

Comfort Zone Nudd og Maski

  • Húðvörur valdar eftir húðtegund.
  • Húðin bæði yfirborðs- og djúphreinsuð.
  • Herða, andlits og höfuðnudd.
  • Maski að lokum.

Ávaxtasýrumeðferð

  • Áhrifamikil húðendurnýjandi meðferð
  • Fjarlægir dauðar húðfrumur af yfirborði húðar, örvar endurnýjun og kollagen framleiðslu húðar.
  • Húðin styrkist og fær fínlegri áferð. Húðlitur verður jafnari og bjartari,fínar línur, hrukkur og ör minnka, brúnir blettir (sólarskemmdir ) dofna.
  • Ávaxtasýrumeðferð hentar flestum húðgerðum.

Starfsfólk

Díana Harpa Ríkarðsdóttir
EIGANDI • SNYRTI- OG FÖRÐUNARFRÆÐINGUR
Díana er með meistararéttindi í snyrtifræði. Hún tók við rekstri snyrtistofunnar árið 2015 ásamt Aðalbjörgu.
Aðalbjörg Níelsdóttir
EIGANDI • SNYRTIFRÆÐINGUR
Aðalbjörg er með meistararéttindi í snyrtifræði. Hún tók við rekstri snyrtistofunnar árið 2015 ásamt Díönu.
Linda Björk Júlíusdóttir
SNYRTI- OG FÓTAAÐGERÐARFRÆÐINGUR
Linda er með meistararéttindi í fótaaðgerðum og hefur starfið við fagið í mörg ár.
Hrönn Sævarsdóttir
FÓTAAÐGERÐARFRÆÐINGUR
Hrönn hefur rúmlega 30 ára reynslu í faginu sem fótaaðgerðarfræðingur.
Valgerður Sæmundsdóttir
SNYRTIFRÆÐINGUR
Valgerður er með sveinsréttindi í snyrtifræði. Hún lauk námi í faginu árið 2005.
Rannveig Gréta Gautadóttir
SNYRTIFRÆÐINGUR
Rannveig er með sveinsréttindi í snyrtifræði. Hún lauk námi í faginu árið 2024.