|
|
![]()
|
![]()
|
|
|||
|
Alhliða snyrting fyrir konur og karla.
Gleðilegt sumar Nýjar íslenskar snyrtivörur |
||||||
|
|
Við erum hætt rekstri snyrtistofunnar á
Tryggvagötu, og flytja Linda og Anna María í Hamraborgina. Nú standa yfir endurbætur í Hamraborginni, og erum við að breyta og bæta við herbergjum, en höfum samt opið. Gamlir og nýjir viðskiptavinir velkomnir í Hamraborgina. DERMATUDE. The facelift alternative. Það allra nýjasta á snyrtivörumarkaðnum í dag. Meta Therapy frá Dermatude er ný meðferð til að verjast öldrun húðarinnar og jafnframt ein sú fullkomnasta. Meta Therapy getur komið í stað andlitsliftingar. Þú getur pantað tíma í nýja tækið í Hamraborginni og kynnt þér hvernig meðferðin er framkvæmd, hversu oft þú þarft að koma og hvað meðferðin kostar. Síminn í Hamraborginni er 554-4414. Einnig getur þú farið á heimasíðuna www.dermatude.com og fengið frekari upplýsingar. Gjafakort í snyrtingu. Ef þú villt gleðja einhvern sem þú þekkir er gjafakort í snyrtingu notaleg gjöf. Jólagjöf, sumargjöf, afmælisgjöf eða tækifærisgjöf er góð gjöf fyrir þann sem þér þykir vænt um. Þú getur valið meðferð eða gefið fyrir ákveðna upphæð. Tilvalin gjöf fyrir afa og ömmu eða pabba og mömmu. Vinsælt er að gefa gjafakort í fótsnyrtingu eða andlitsbað. Ef þú villt gefa einhverjum algjört dekur er lúxus dekurdagur efst á óskalistanum. Gjafakortin eru í fallegum gjafapokum. Verið velkomin. Nýjar íslenskar snyrtivörur. Við erum búnar að taka inn nýjar íslenskar snyrtivörur sem heita Vor. Margrét Sigurðardóttir grasalæknir framleiðir Vor snyrtivörurnar. Margrét notar íslenskar júrtir og íslenskt vatn í sínar vörur, og er hægt að fá krem unnin úr íslenskum bláberjum og íslenskum þara: Við erum að selja Vor vörurnar og erum að byrja að nota vörurnar í andlitsmeðferðir. Þannig að nú getur þú komið til okkar í lífrænt andlitsbað:-) Nýtt frá OPI. Nýtt gel lakk er komið á markaðinn frá OPI, GELCOLOR. Lakkinu er lakkað á neglurnar eins og venjulegu naglalakki og sett undir sérstakt ljós sem herðir lakkið og getur lakkið haldist á nöglunum í allt að þrjár vikur. Algjör snilld, styrkir neglurnar og er mjög fallegt. Opnunartími Opið í Hamraborg frá kl. 8 -17 alla virka daga. (Opið til 18 eftir pöntunum.) Laugardagar opið eftir pöntunum. Pantið tímanlega ef þið viljið koma á laugardegi. Lokað á sunnudögum. Nimue nýjar meðferðarvörur í Hamraborginni. Þessar vörur innihalda ávaxtasýrur og hjálpa húðinni til að leiðrétta ýmis húðvandamál, t.d. þura húð, húð með litablettum, feita húð og viðkvæma. Þessar vörur eru einungis seldar og notaðar af snyrtifræðingum á snyrtistofum. Komdu við í Hamraborginni og fáðu faglegar ráðleggingar varðandi húðina. Hamraborg 10, Kópavogi. Við erum upp á annari hæð í Hamraborg 10, inngangur til okkar er á suðurhlið húsnæðisins. Við erum við hliðina á Landsbankanum og Heilsugæslunni. Við erum með alla almenna snyrtiþjónustu, litun, vaxmeðferð, andlitsböð, húðhreinsun, handsnyrtingu, fótsnyrtingu, rafmagnsháreyðingu og förðun. Einnig erum við með hljóðbylgjutæki frá Ella Bache, bæði fyrir andlit og líkama, sem eykur blóðflæði og er mjög endurnýjandi og styrkjandi fyrir húðina. Hljóðbylgjur fyrir líkamann eru bólgueyðandi og bæta sogæðakerfi líkamans og eru þar af leiðandi mjög góðar fyrir þá sem eru með bjúg og bólgna fætur eða celluliti. Einnig bjóðum við upp á fótaaðgerðir fyrir þá sem eru með fótavandamál t.d. líkþorn, inngrónar táneglur eða önnur vandamál. Góður árangur er af spangarmeðferð fyrir inngrónar táneglur.
|
Síðan var uppfærð 30. apríl 2013.